Ásgeir og Þóra í Gautaborg

01.08.2007 14:30:48 / thorai

Hamingjusöm

Við viljum þakka öllum fyrir kveðjurnar á síðasta bloggi.  Prinsessan okkar er algjört yndi og voða vær og góð. 

Ég hef ákveðið að hætta með þessa síðu og í staðinn munu nýjustu myndirnar og fréttirnar koma hingað inn
http://www.barnanet.is/hugrunbjork

Ekki vera feimin við að biðja um leyniorðið.

Prinsessukveðjur
Þóra


» 8 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 08:52:10 / thorai

Lítil prinsessa

Lítil prinsessa fæddist í nótt klukkan 1:47. Hún er 50 cm og vó 3325 grömm . :lol:

 Mig langar til að nota tækifærið og óska nýbökuðum foreldrum innilega til hamingju með frumburðinn. :D

kv.Berglind


» 29 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 21:19:55 / thorai

Bara vinsæl

Fjúfffff ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum þegar ég leit á hversu margir hafa heimsótt síðuna mína í dag.  Dagurinn í dag hefur pottþétt slegið öll met með 96 heimsóknum og enn tími til stefnu að ná hundrað stafa tölunni.  Shjæsen pæsen.........hver ætli ástæðan sé eiginlega?? :$
Ég ætlaði mér reyndar ekki að blogga núna en ákvað að gera það svona fyrir ykkur elsku forvitnu lesendur mína.

Það er sem sagt ósköp fátt að frétta því miður.  Ég er búin að vera með einhverja verki en það hafa alltaf verið platverkir.  Þeir eru mis sterkir og maður er alltaf að vona þegar sterku verkirnir koma að nú sé þetta að skella á en svo gengur það bara til baka.  Litli gríslingurinn minn sker sig inn í ættina mína greinilega og hefur gaman af því að stríða mömmunni, pabbanum, ömmunni og afanum.  Það er sko langt síðan við Ásgeir fórum að hlægja af unganum okkar.  Til dæmis þegar maður vogar sér að leggja hendina á bumbuna þá er bara sparkað þangað til hendin er fjarlægð.  Ásgeiri finnst svo alltaf jafn fyndið að finna fyrir hiksta en mér finnst það svona gaman upp að vissu marki hehehe.  Núna er barnið að stríða okkur með því að þykjast vera að koma en segir svo "nei djók, bara seinna"  

Ég held að ég muni eiga um jólin, þá er allt þar á undan bara STÓR plús.

Vona að þið afsakið að ég hafi ekkert bloggað fyrr.  Það er bara búið að vera nóg að gera með mömmu og pabba.  Alveg róleg mér er ekkert þjösknað áfram, ég er prinsessan á bauninni núna...en ekki hvað ;)  Til dæmis vorum við að klára að borða ÍSLENSKT lambalæri....joooooooooooooooooommí hvað það var gott.  *hóst*skylda að allir taki lambalæri með til Gautaborgar*hóst*

Annars er stórmerkilegur dagur á morgun 26.júlí.  Þá verð ég árinu eldri.  Nokkuð ljóst allavega að ég mun ná 24 ára aldrinum áður en ég verð móðir.

Hafið það gott

Kveðjur frá Gautaborg


» 22 hafa sagt sína skoðun

21.07.2007 14:18:09 / thorai

40 vikur

Jæja þá er 21.júlí runninn upp.  Dagurinn sem við höfum miðað við í langan tíma.  Það er lítið að gerast og lítið um verki, bara nokkrir platverkir af og til.  Við förum í göngutúra á hverjum degi, löbbum upp stiga og gerum allt sem stendur í þessum kerlingabókum en ekkert hefur virkað ennþá.  Er það ekki bara gamla góða klisjan "barnið kemur þegar það er tilbúið." 
Það verður gaman að sjá hvaða afmælisdag barnið velur sér, hvort það velji afmælisdag sem það á eitt og sér eða hvort barnið velji afmælisdag til að deila með öðrum.  Því nóg er um afmælin núna í lok júlí.  Til dæmis á Drífa Guðrún afmæli á morgun 22.júlí, ég 26.júlí, Jana litla (frænka hans Ásgeirs) 29.júlí og svo eru fleiri afmælisdagar uppteknir.  Ég hef alltaf sagt að barnið fæðist 27.júlí og fái því kennitöluna 27.07.07 en eins og staðan er í dag nennum við ekki að bíða í 6 daga í viðbót en svo gæti þess vegna farið að við þurfum að bíða í 14 daga í viðbót......fjúffff er ekki einhver spákona hérna ;)

Mamma og pabbi koma til okkar á mánudaginn þannig að við ættum að hafa eitthvað að gera í næstu viku.  Sýna þeim borgina og njóta þess að vera með mömmu og pabba.  Þá verður gaman :) 
Vá ég hljóma örugglega þvílíkt desperate en málið er að það er liðinn ansi langur tími síðan skólinn kláraðist og Ásgeir búinn að vera í fríi í 2-3 vikur svo að það er komið gott af þessu "fríi."  Við erum auðvitað orðin gríðarlega spennt og dagarnir hjá okkur eru allir voðalega eins.  Við erum allavega alveg tilbúin í þetta stóra verkefni sem bíður okkar og sko meira en lítið til í að breyta hversdagsleikanum.

Ætla að hætta þessu röfli áður en ég fer að tala í hringi, hér kemur mynd sem var tekin í gær og þá var ég gengin 39v6d
Jæja vonandi skrifa ég ekkert aftur inn fyrr en ég er orðin móðir :) fer allt eftir því hve lengi barnið lætur bíða eftir sér. En ég lofa að um leið og barnið fæðist koma fréttir hingað inn.  Hún Berglind er svo æðisleg og búin að taka það að sér að færa ykkur heitustu fréttirnar um leið og þær berast henni í hús. 

Bestu kveðjur frá Gautaborg

P.s.
Ein spurning að lokum.  Man einhver hvað þættirnir heita með Obladí oblada life goes on bra.....laginu? (ábyrgist ekki að textinn sé réttur hjá mér)


» 12 hafa sagt sína skoðun

17.07.2007 18:23:45 / thorai

Víkurfréttablogg

Það var mikið að þau viðurkenna það

http://vf.is/frettir/numer/32318/default.aspx

Helv*bíííp* Slorgerðislyktin sem kom alltaf yfir Garðinn þegar vindáttin var þannig

Gúrkutíð mikil í gangi.  Ég vona samt að mjög bráðlega komi stóóóór fréttir.

Har det så bra

Þóra


» 11 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 15:50:22 / thorai

Síðasta vikan

Í dag er ég gengin akkúrat 39 vikur og 1 dag sem þýðir að það eru ekki nema 6 dagar í settan dag og 8 dagar í mömmu og pabba og svo má barnið bara alveg fara að láta sjá sig. 

Við áttum rólega helgi, reyndar er alltaf helgi hjá okkur.  Við erum alveg búin að njóta þess að vera í fríi saman, við finnum okkur alltaf eitthvað að gera.  Ég vona samt að ég geti legið í sólbaði aðeins í þessari viku ;) 

Ég hef frá voðalega litlu að segja núna.  Mig langaði bara að láta vita að við erum enn heima og öllum líður vel.  Ef eitthvað gerist þá er ég með staðgengil sem ætlar að koma með nýjustu fréttir hingað inn þar sem ég mun vera á fæðingardeildinni í tvo daga eftir fæðingu.

Ég var að láta nýjar myndir inn á júlí 2007.

Hjútskossaknús frá Gautaborg 


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.07.2007 14:12:46 / thorai

Mont

Mig langar aðeins til að monta mig.  Frændi minn hann Árni Þórmar er að spila ásamt félögum sínum í 4.fl Fylki á móti á Spáni.  Þeir eru búnir að standa sig alveg frábærlega vel.  Þeir komust upp úr riðlinum sínum með tveimur sigrum og einu jafntefli og spiluðu í morgun í 32 liða úrslitum þar sem þeir fóru með sigur 1-0.  Þar með eru þeir komnir í 16 liða úrslit og er sá leikur klukkan 17 í dag að staðartíma.  Ég er ekkert smá ánægð með litla frænda og Fylkisstrákana.  Þeir eru ekki bara að standa sig vel á Spáni heldur eru þeir líka í 1.sæti á Íslandsmótinu.  Ég er mjög stolt frænka og hugsa mikið til þeirra.  Ég væri sko til í að vera með þeim á Spáni núna og standa á hliðarlínunni ásamt Helgu systur.  Ég er nokkuð viss um að það myndi heyrast HÁTT í okkur systrum þó ég efist nú ekki um að það heyrist í henni Helgu ;) 

Upplýsingar að mestu handa fjölskyldunni:
Ég talaði aðeins við Árna Þórmar á msn í gær og hann sagði að það væri allt gott að frétta og öllum liði vel.  Þeir lentu víst í brjáluðum leik í gær eins og hann orðaði það þar sem dómarinn var þeim ekki hliðhollur.  En þeir láta ekki svoleiðis vitleysu hafa áhrif á sig.  Áfram Fylkir!!!

Ég ætla að stelast til að láta tvær myndir hérna inn sem hann sendi mér. 
fut121.jpg
fut141.jpg

Þeir sem hafa áhuga geta smellt á þessa slóð http://www.fylkir.com/fylkir/knattspyrna/yngri_flokkar_knd/4_flokkur_karla/spann_2007/ 
og fylgst með gangi mála. 

Allt bara við það sama hér.  Við Ásgeir erum að reyna að semja við barnið um að láta ekki bíða mikið eftir sér.  Barnið hefur ekki lofað neinu en vonum bara að það hlýði foreldrum sínum :)

Bestu kveðjur frá Gautaborg

________________________________________________________________________
Update:
Strákarnir töpuðu því miður leiknum í 16 liða úrslitunum 1-0 þar sem andstæðingarnir skoruðu þegar 30 sek voru eftir :( 
Fylkisstrákarnir mega sko vera sáttir, glæsilegur árangur hjá þeim, þeir eru sko bara flottastir og bestir.  Áfram Fylkir


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 18:51:31 / thorai

9.júlí

Við áttum æðislega helgi.  Tókum rúnt á laugardaginn og ákváðum að skella tjaldinu í skottið just in case.  Við enduðum á því að tjalda á stað sem heitir Örn eftir mikla umhugsun hvort við ættum að vera að tjalda eða ekki.  Ég er sko fegin að við ákváðum að gera það, það er alltaf svo gott að sofa í tjaldi og langt þangað til við gerum það aftur.
Við keyrðum í bæ sem heitir Kungshamn, mjög fallegur hafnarbær.  Við skoðuðum bæinn og höfðum það gott, löbbuðum mikið og skoðuðum.  Staðurinn sem við tjölduðum á er í svona 10 mínútna fjarlægð frá Kungshamn, mjög fallegt þar.  Ég held samt að það hafi verið svona þrjú tjöld þarna og allt hitt voru hjólhýsi, við vorum frekar halló sko ;)  Eftir að vera búin að tjalda skoðuðum við staðinn, grilluðum, tókum krikket og höfðum það notalegt og rólegt saman.  Við sváfum svo bara alveg ágætlega í tjaldinu.
Þegar við vöknuðum morguninn eftir var frekar þungskýjað þannig að við ákváðum að taka saman á meðan ekki rigndi og brunuðum svo bara hraðbrautina heim.  Gistum svo heima hjá Sigrúnu og Peter aðfaranótt mánudags og ég held að Nisse hafi verið voða feginn því.  Hann hefur ekki viljað tala mikið við okkur hingað til en núna var hann voða mikið að nudda sér í okkur.  Greyið búinn að vera einmana held ég í viku en hann ætti að vera glaður að sjá fjölskylduna sína í kvöld :)

Komnar myndir af ferðalaginu okkar undir júlí 2007.  Leyniorðið er nafnið á bróður mínum með stórum upphafsstaf og engum íslenskum stöfum.

Allt gott að frétta af okkur og allt rólegt fyrir utan spörk, hiksta og hnoð :)

Bestu kveðjur frá Gautaborg


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 12:48:16 / thorai

Alltaf í boltanum

Kominn enn einn föstudagurinn og jafnframt síðasti "vinnudagurinn" hjá Ásgeiri í bili.  Mennirnir sem hann er hjá í handleiðslu eru að fara í sumarfrí þannig að Ásgeir tekur sér bara frí líka.  Það verður gott að hafa Ásgeir heima, bara tvær vikur á morgun í settan dag svo við ætlum bara að njóta þess að vera tvö saman þangað til krílið okkar ákveður að koma í heiminn.  Ásgeir byrjar svo aftur á verkefninu einhverntíman eftir fæðingu.

Það var alveg svakalega mikið að gera hjá mér í nótt.  Ég var nefnilega komin í karlalandsliðið í handbolta og ég var nú bara að standa mig vel þó ég segi sjálf frá.  Þetta var alveg hörkuleikur og ég var aðal stjarnan í leiknum.  Þegar ég vaknaði var ég sveitt eftir öll átökin og pínu illt í fótunum.  Ég held ég þurfi að fara að hafa myndavélina í gangi á nóttunni.  En þetta var ansi góður draumur maður. 

Það getur verið að við skreppum "út á land" um helgina.  Tökum allavega dagsrúnt, sjáum svo til hvort við ætlum að tjalda.  Veðurspáin er ekkert allt of góð.  Þegar ég meina ekkert allt of góð þá er ekki spáð sól.  Það er samt spáð nokkuð hlýju veðri og ætti að haldast þurrt.  Yrði engin spurning um að fara í ferðalag í þessu veðri á Íslandi en þar sem maður er orðinn svo pjattaður á veðrið þá vill maður bara sól.  Svona er þetta....verður maður ekki að aðlagast hlutunum þegar flutt er til annars lands ;)  Reyndar er búið að rigna ansi mikið hjá okkur síðan sólin byrjaði að skína á Íslandi en ég sé fram á úrbætur á því eftir helgi :)

Allt bara að verða vitlaust í boltanum á Íslandi.  Ég ætla bara að vera alveg svakalega hlutlaus og segja skamm skamm Bjarni og Guðjón og skamm skamm Keflvíkingar.  Túlki nú hver fyrir sig.

Ég vil þakka öllum fyrir kveðjurnar í síðasta bloggi.  Ég er búin að lesa þær aftur og aftur, mér finnst svo gaman að sjá hvort kynið þið haldið að ég gangi með.  Það verður líka gaman að sjá hverjir hafa rétt fyrir sér en mér finnst meirihlutinn segja stelpa enda sést það í könnunni hér til hliðar.  Það héldu líka allir að Ragnar Snorri væri stelpa þegar Heiða gekk með hann en svo kom þessi æðislegi strákur þannig að það er nú ekki mikið að marka alla þessi "speki."  Ég sjálf hef enga hugmynd, jú ég er auðvitað spennt að vita kynið en ég er nú mest spennt að sjá hvernig barnið okkar lítur út og að kynnast barninu.  Verður barnið með mitt skap eða Ásgeirs??  Krullurnar mínar?? Gáfurnar hans Ásgeirs??   Æi þetta er svo spennandi en ég verð að segja að ég vona að barnið fari milliveginn í skapinu ;)

Hafið það gott um helgina, farið varlega í umferðinni og skemmtið ykkur vel.

Kveðjur frá Gautaborg


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 10:48:05 / thorai

Júlí

Jæja þá er júlí loksins runninn upp.  Mánuðurinn sem við höfum beðið eftir lengi lengi.  Tíminn hefur sko liðið hratt en mér hefur þótt hægjast pínu á tímanum svona á endasprettinum 8) 

Við áttum ágætis helgi sem byrjaði eins og alltaf með pizzu ala Ásgeir á föstudaginn en það er bara orðinn fastur liður að Ásgeir baki pizzu á föstudögum.  Með pizzunni horfum við yfirleitt á AFV eða American Funniest home Videos og hlægjum stundum og hneykslumst stundum, okkur þykir nefnilega kynnirinn alveg hræðilega leiðinlegur en mörg atriðin geta verið ansi skondin.
Laugardagurinn var nú rólegur en við tókum samt göngu í bæinn með viðkomu á kaffihúsi...voða næs.
Á sunnudaginn skutluðum við Peter upp á flugvöll en hann fór til Íslands þar sem restin af fjölskyldunni hans er þannig að núna erum við að passa húsið þeirra og Nisse (köttinn þeirra) í rúma viku.  Svo höfum við aðgang að bíl og fíneríi.  Við grilluðum okkur góða steik heima hjá þeim en Nisse vildi ekkert tala mikið við okkur nema bara rétt á meðan ég helti mjólk í skálina hans.  Ég var mikið að spá í að lauma mér í ferðatöskuna hans Peters en hætti við svo hann þyrfti nú ekki að borga alla yfirvigtina :$ 

Ásgeir tók sér frí frá verkefnisvinnunni í gær (mánudag) og við náðum að klára nánast allt barnastúss.  Náðum í vagninn okkar sem við erum ekkert smá ánægð með, geggjað flottur. Síðan fórum við í Gekås en það er alveg risa búð og mjög ódýr en tekur um klukkutíma að keyra þangað.  Við náðum að kaupa slatta þar og eyða nokkrum þúsundköllum en þetta voru auðvitað allt bráð nauðsynlegir hlutir og svo kaupir maður nú alltaf bara aaaaaðeins meira en maður ætlar sér ;)   

Fréttatími búinn

Hafið það gott

Knúskveðjur frá Gautaborg

P.s.
Ég bætti inn nokkrum bumbumyndum inn í júní 2007 svona fyrir þá sem hafa áhuga :)


» 12 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 12:24:36 / thorai

Þraut fyrir helgina

YOUR AGE BY DINNER & RESTAURANT MATH


This is pretty neat

DON'T CHEAT BY SCROLLING DOWN FIRST!

It takes less than a minute. Work this out as you read ...Be sure you don't read the bottom until you've worked it out!
This is not one of those waste of time things, it's fun.

1. First of all, pick the number of times a week that you would like to go out to eat (more than once but less than 10)

2. Multiply this number by 2 (just to be bold)

3. Add 5

4. Multiply it by 50

5. If you have already had your birthday this year add 1757...If you haven't, add 1756.

6. Now subtract the four digit year that you were born. You should have a three dig it number.

The first digit of this was your original number. (I.e., How many times you want to go out to restaurants in a week.)
 

The next two numbers are YOUR AGE ! ------ (Oh YES, it is!!!)

THIS IS THE ONLY YEAR (2007) IT WILL EVER WORK, SO SPREAD IT AROUND WHILE IT LASTS.

Þetta passaði hjá mér en hjá þér?

________________________________________________

Eitt að lokum.  Hvaða væl er þetta með KR og gengi þess í sumar.  Ég horfði á Kastljósið í gær og þar var farið sérstaklega að ræða við stuðningsmenn um slakt gengi KR-inga í sumar.  Ég sæi líka Kastljósið fara til stuðningsmanna Fylkismanna eða annars liðs ef gengið þeirra væri svona slapt.  Goood hvað ég þoli ekki KR og ég mun sko fagna, fagna, fagna þegar þeir falla í haust :)

Farið varlega um helgina og góða skemmtun á Sólseturshátíðinni, ferðalögunum, í eyjum eða bara hvað sem þið eruð að fara að gera.

Hej då


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 19:02:02 / thorai

27.júní

Fyndið hvað veðrið hefur mikil áhrif á mann.  Það er ekki búið að vera neitt sérstakt veður hjá okkur í þessari viku á meðan maður heyrir af sól og frábæru veðri á Íslandi.  Alltaf þegar veðrið mætti vera betra hérna þá langar mig til Íslands.  Mig langar alveg svakalega mikið í tjaldferðalag með góðum hóp.  Mig langar líka á fótboltaleik hjá Fylkisstelpunum og Víðisstrákunum, sitja á grasinu og japla á strái á meðan.  Mig langar á Sólseturshátíðina út í Garði um helgina, hitta Garðbúa, labba út að gamla vita, labba upp í stóra vita og anda að mér ferska loftinu út á Garðskaga.  Mig langar auðvitað líka að hitta ykkur kæru vinir og fjölskylda, mig langar, mig langar, mig langar svo margt en maður fær nú ekki allt sem maður óskar sér.

Ætli það sé ekki pínu heimþrá í mér þessa dagana.  Ég kann ekki alveg að vera "bara í fríi."  Ég hef alltaf byrjað á sumarvinnunni daginn eftir síðasta próf og verið svo að vinna allt sumarið, fyrir utan kannski 2 vikur sum sumur þegar skroppið er til heitu landanna.  Þannig að ég hef haft mikinn tíma með sjálfri mér síðan skólinn kláraðist.  Reyndar hef ég reynt að nýta þennan tíma vel og bara slappað af og njóta þess á meðan ég get eins og allir eru að segja mér að gera ;)  Þegar sólin skín nýt ég þess í botn að liggja í Slottskogen með góða bók, ég mæli með Flugdrekahlauparanum, æðisleg bók.  Ég er líka dugleg að fara í göngutúra og svo verður maður nú að reyna að vera góð húsmóðir ;)  
Það er kannski hægt að lesa úr þessu að mér leiðist alla daga en það er ekki rétt.  Ég veit nefnilega að eftir rúmar þrjár vikur (plús vonandi ekki of margar) mun þetta allt breytast og sólarhringurinn mun snúast um lítinn snúlla eða litla snúllu.  Ég hlakka mikið til að vera gengin 40 vikur og geta leyft mér að fara að "bíða"  ég hef nefnilega bannað mér að byrja að "bíða."  Ég er meira farin að bíða eftir þegar mamma og pabbi koma í heimsókn :)  Þá verður sko gaman og ég hlakka til að sýna þeim svo margt, það er ef bumbubúinn lætur bíða mikið eftir sér.  

Við fórum ekki í billa né keilu síðustu helgi eins og við ætluðum okkur.  Ásgeir þorði ekki!!!  Við reyndar tókum göngu að keiluhúsinu en það var lokað vegna Midsommar.  Ásgeir heppinn.  Við reynum aftur síðar.

Já við höfum það mjög gott í Gautaborg þó að það blundi oft í manni pínu heimþrá, annað væri nú ekki eðlilegt.

Skemmtið ykkur vel um helgina og njótið sólarinnar :D

Hafið það gott og gerið það fyrir mig að fara varlega í umferðinni

*HjútsknúsfráGautaborg*  


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.06.2007 15:00:49 / thorai

36 vikur

Í dag er ég gengin 36 vikur sem þýðir að það eru ekki nema 4 vikur eftir í settan dag.  Vá hvað okkur finnst tíminn fljúga hratt áfram, við verðum komin með barnið í fangið áður en við vitum af.  Mikið svakalega hlökkum við til. 
Við náum í vagninn okkar sennilega í þarnæstu viku.  Það var hringt í okkur fyrir 2-3 vikum og sagt að hann væri loksins kominn en við ákváðum að bíða aðeins með að ná í hann.  Við höfum líka bíl þá svo að það er fínt að ná í hann þá.  Annars held ég að við eigum ekki eftir að kaupa mikið nema þá bara leikteppi á golfið er eitthvað sem ég man eftir núna.  Gerum það fljótlega. 
Ásgeir festi kommóðuna/skiptiborðið pikkfast við vegginn áðan en maður tekur enga sénsa með barnið sitt.  Svo ætla ég að fara að þvo fötin í vikunni, þá ætti maður að sjá hvað vantar og hvað ekki.  Svooooo gaman :)

Ísland lenti með Svíþjóð í riðli á EM í handbolta.  Ég var svona pínu að vona að þessi lið myndu ekki lenda saman.  Það er soldið fyndið að hlusta á fréttirnar heima og svo á fréttirnar hér.  Íslenskir fréttamenn tala um hvað Ísland lenti í erfiðum riðli og að það verði erfitt að komast áfram en Svíar tala um að þeir hafi lent í góðum og léttum riðli.  Þeir gengu meira að segja svo langt að segja að þeir þurfi litlar áhyggjur að hafa af Íslandi og Slóvakíu.  Þeir eru semsagt bara hræddir við Frakkland.  Mikið svakalega ætla ég að vona að við sýnum hvað í okkur býr og þöggum niður í þessum svíum, þeir eru greinilega búnir að gleyma hverjir slóu þá út fyrir HM. 
Ég sé það núna að Ásgeir hefði átt að fara í NTNU í Þrándheimi, þá hefðum við sko farið á alla leikina þar sem Ísland spilar í Þrándheimi.....bömmer!!!  Þeir sem ekki vita þá sótti hann líka um í NTNU ;)    Áfram Ísland :D

Annars er ég að byggja mig upp andlega núna.  Ásgeir er búinn að vinna mig tvisvar í röð í rommí sem er ekki nógu gott.  Ég læt hann ekki vinna mig þrisvar í röð sko.  Svo ætlum við kannski í keilu á eftir, tökum allavega billa (biljard).  Ég er nú nokkuð örugg með sjálfa mig þegar kemur að billa á móti Ásgeiri.  Ég hafði svo góðan kennara, Arnór klikkar sko ekki ;)  Ég hef samt leyft Ásgeiri að vinna svona til að halda friðinn. 

Har det så bra
Knús frá Gautaborg 


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 12:37:17 / thorai

Minningar

Í gærkvöldi röltum við Ásgeir Slottskogen hringinn okkar eins og við gerum svo oft.  Það voru óvenju margir í skóginum í gær og vitum við ekki alveg ástæðuna en um helgina er Midsommar og gæti ástæðan verið út af því.  Midsommar er svona eins og míní útgáfan af Verslunarmannahelginni.  Með míní á ég við að þeir djamma "bara" eitt kvöld en taka ekki alla helgina eða jafnvel heila viku eins og Íslendingar gera.  Aðal fjörið er sem sagt á föstudaginn og má búast við að borgin verði tóm fyrir utan okkar íbúð.  Allavega fer fólk út fyrir borgina og bæina, tjalda og hafa það gaman.  Á svona tímum væri gaman að hafa bíl.

Á rölti okkar í gær um Slottskogen tókum við eftir því hve margir hópar voru að spila hafnabolta/kíló eins og maður gerði svo oft í gamla daga.  Það rifjuðust upp fyrir mér margar minningar frá því ég var lítil saklaus stelpa á túninu fyrir utan bæjarskrifstofuna eða á ég kannski að segja gömlu bæjarskrifstofuna (er ekki viss hvort hún sé flutt).  Þarna söfnuðumst við saman og spiluðum fótbolta, rúbbí, hafnarbolta og margt annað skemmtilegt.  Ég man sérstaklega eftir einu atviki í hafnarbolta þegar Nonni var með kylfuna og átti að slá boltann.  Í fljótfærni sinni sagði Nonni "fál" sem merkti að hann vildi ekki að skotið hans yrði gilt því hann hélt hann hefði hitt boltann svo illa en boltinn fór lengst út fyrir grindverkið (sem er nú farið ).  Hann hefði sem sagt geta hlaupið nokkra hringi og frelsað okkur sem vorum úti en ég var með honum í liði.

Það rifjaðist líka upp fyrir mér þegar bekkurinn minn var í kíló í leikfimi og liðunum var skipt þannig að stelpur voru á móti strákum.  Leikurinn var æsi spennandi og endaði þannig að við stelpurnar fórum með sigur af hólmi með að mig minnir einu stigi.  Verð ég að viðurkenna að það gerðist ör sjaldan að við stelpurnar unnum og var þetta mikil gleði fyrir okkur stelpurnar.  Strákarnir hins vegar sökuðu okkur um svindl og pretti og Bjössa kennara um að halda með okkur stelpunum.  Þeir voru í einu orði sagt brjálaðir.  Sannleikurinn er sá að við unnum án nokkurs svindls og væri gaman ef einhver strákurinn í bekknum gæti nú loksins viðurkennt það, en ég held að enn þann dag í dag séu þeir svo sárir að hafa tapað á móti okkur stelpunum....greyin.

Ég væri sko alveg til í að verða lítil stelpa aftur, þó ekki væri nema í einn dag og upplifa allt þetta aftur.  Fara svo með pabba á rúntinn út á skaga og svo til ömmu og fá ömmuköku.  Ekki væri nú verra ef ég fengi jafnvel að prófa að keyra bílinn frá Garðskagavita að gula húsinu hennar Maríu gömlu sem mér fannst þá alveg gríðarlega löng vegalengd ;)

Já good old times :)

Kveðjur frá Gautaborg


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 17:30:12 / thorai

Þjóðhátíðarhelgin

Það er alveg greinilegt að 17.júní er happadagur íslenska kk landsliðsins í handbolta.  Vinna tvö ár í röð og tryggja sér sæti í úrslitum á stórmóti.  Ég er strax farin að hlakka til í janúar þegar þeir fara á EM.  Mótið er í Noregi...kjörið að koma í heimsókn til okkar í janúar og skella sér á leik með okkur/Ásgeiri...ekki svo langt að fara ;) 

Ég bara man ekki hvað við gerðum á laugardaginn, hefur greinilega ekki verið mjög merkilegt en ég man það að það leit út fyrir að verða ekta íslenskt 17.júní veður daginn eftir með tilheyrandi rigningu.  En það rættist ekki, heldur var hið fínasta veður hjá okkur á 17.júní.  Jú ég horfði auðvitað á íslenska kvk landsliðið í fótbolta sigra Frakka með glæstum sigri en ég var búin að segja ykkur frá því.
Við fórum í Slottskogen 17.júní og hittum nokkra íslendinga.  Það verður örugglega skemmtilegara fyrir okkur að fara á næsta ári.  Þetta voru allt foreldrar með börnum sínum og það var farið í leiki og svona.  Við settumst þarna hjá þeim og fylgdumst með leikjunum en vorum ekkert voðalega lengi. 
Við fórum í bíó um kvöldið á nýjustu Pirates of the Carabean, hún var svona allt í lagi.  Hefði samt alveg verið hægt að stytta hana um einhverjar mínutur. 
Við pössuðum okkur á því að fara á myndina kl. 19.00 til að geta örugglega náð seinni hálfleik af landsleiknum.  Ég verð bara aðeins að fá að kvarta núna undan ruv.is!!  Við komum heim þegar nokkrar mínútur voru eftir af fyrri hálfleik og svo vorum við alveg gríðarlega spennt í seinni hálfleik og ég þakkaði fyrir að hafa ekki verið gengin svona langt á HM í janúar...slíkur var spenningurinn.  Þegar 8 mínutur voru eftir af seinni hálfleik ákvað ruv.is að KÖTTA Á ÚTSENDINGUNA.  Hvað er málið!!??!!  Kötta á útsendingu í miðjum æsispennandi úrslitaleik....við vorum sko ekki sátt og létum á rás 1 til að hlusta á Bjarna Fel lýsa síðustu mínutum og er nú eins gott að ég hlustaði ekki á hann allan tímann.  Ég þoli ekki þegar lýsendur byrja á þessu "nú er þetta komið"  "við erum búin að sigra" og það eru nokkrar mínútur eftir og allt getur gerst.  Svona var Bjarni Fel og Serbarnir hefðu alveg getað skorað þetta eina mark sem þeir þurftu en sem betur fer gerðu þeir það ekki......hvað hefði Bjarni Fel sagt þá eftir þessar yfirlýsingar?? 

En við unnum sem betur fer og við fórum að sofa með bros á vör :) og það skiptir öllu.

Við fórum í skoðun í gær og allt lítur mjög vel út.  Barnið hreyfir sig og sparkar og fær hiksta og stundum allan pakkann í einu þannig að bumban er á 100...bara frábært :) 

Hafið það gott
Kveðjur frá Gautaborg


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 23
Klukkan
Dagsetning
19. mars 2010
�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1087 dögum
�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1100 dögum
Myndir 2006
Myndir 2007